Í fyrrakvöld fórum við pílagrímsferð á þorpsbarinn sem var ansi áhugavert. Fyrir það fyrsta var alveg hellingur af fólki þarna inni sem kom á óvart (mánudagskvöld í 90 manna þorpi?) en staðfestir svo sem það sem ég hafði heyrt um drykkjuvenjur þorpsbúa. Það var glymskratti úti í horni sem ruddi út úr sér allskyns rokkslögurum og fólk var svona almennt frekar ölvað en engin læti samt í gangi. Hápunktur kvöldsins var án efa þegar annar barþjónn staðarins settist hjá okkur og fór að spjalla. Sá var svo fullur að hann var orðinn alveg stjarfur um munninn.. get ekki lýst því en það var mjög fríkí og benti til þess að hann væri búinn að vera svona fullur mjög lengi. Hann vildi endilega kaupa handa okkur bjór og fór svo að sýna okkur puttabrotið sitt en hann hafði sem sagt puttabrotnað í fingurglímu þarna á barnum nokkrum kvöldum áður. Hmm einmitt. Hann vildi nú samt ekkert láta líta á þetta ,var bara búinn að teipa puttana saman með appelsínugulu teipi og var nokk sáttur. Spes gaur.
Ég var svona aðeins stirð í gærmorgun eftir barferðina en það þýddi ekkert að væla yfir því, vaknaði bara klukkan hálfsjö og vann til hálfníu um kvöldið eins og lög gera ráð fyrir. Þetta gengur allt frekar vel hjá okkur svo ég hef nú verið merkilega róleg hérna miðað við oft áður. Á morgun fer ég aftur til Seattle svo ég býst alveg eins við því að um áttaleytið í kvöld fari allt í kaldakol og ég fái hjartaáfall af stressi en það verður þá bara að vera þannig. Ætla ekki að stressa mig upp fyrir því fyrirfram hehe.
Það verður annars gott að fara til Seattle og vera ég sjálf aftur. Ég er búin að vera úfin og maskaralaus í bláum vinnugalla og stáltárskóm síðustu daga og það tekur bara á að vera svona ljótur. Seriously. Ekki það að ég verði beint í hælaskóm og kjól um borð í þessum togara þarna í Seattle en ég get allavega verið sæt á kvöldin þegar ég fer út að borða. Það er betra en ekkert!
Posted by kristingroa at 11.06.08 17:22