Jæja þetta er nú þegar orðinn 14 tíma vinnudagur og ég er ekkert að fara að hætta alveg strax. Það versta er að akkúrat núna er ég bara að fylgjast með kerfinu en það er svo lítið af fiski að koma inn að mér hundleiðist. Það gerist eitthvað markvert á u.þ.b. hálftíma fresti en þar sem ég er að fara á morgun og þarf að sjá þetta dót í keyrslu þá verð ég bara að láta mig hafa það að hanga hérna. Blehh. Sólin braust skyndilega fram í dag og núna er eiginlega orðið léttskýjað svo það er frekar líklegt að það verði flogið á morgun. Það þýðir að ég mun væntanlega upplifa það að fljúga með þessari fjárans 60 ára gömlu sjóflugvél. Hinir gaurarnir sem fara líka á morgun eru ægilega spenntir fyrir því að fljúga með þessu en ég fæ bara hroll. Ég vil helst ekki fljúga með safngrip en ég er greinilega ein um að vera svona snar svo ég verð líklega að láta mig hafa þetta. Ég meina þeir hafa nú ekki náð að brotlenda svona græju síðan í apríl svo ég ætti að vera góð. Jájájá.
Posted by kristingroa at 12.06.08 04:32