júní 12, 2008

Akutan enn um sinn

Einhvernveginn hafði ég á tilfinningunni að ég yrði föst hérna lengur en áætlað var. Fyrsti fiskurinn kom sem sagt í gær og eins og venjan er í starti voru nokkur smáatriði sem þurfti að laga en almennt séð keyrði allt vel. Við fengum bara svo lítinn fisk að það var ekki stanslaus keyrsla og ekki hefur verið neinn fiskur í morgun þannig að við höfum ekkert getað prófað. Það var svo haldinn stöðufundur áðan og auðvitað vilja þeir hafa okkur í dag í viðbót til að sjá þetta rúlla í einhvern tíma. Það er svo sem ósköp skiljanlegt og satt að segja skiptir það mig ekki öllu máli hvort ég er hér einn dag í viðbót. Það sem er svekkjandi við þetta er að það er alveg fullkomið flugveður í dag en það getur allt verið breytt á morgun. Ojæja svona er þetta bara.

Ég afrekaði það annars að vinna 18 tíma vinnudag í gær sem ég held að sé persónulegt met. Það er allt útlit fyrir að ég nái einhverju svipuðu í dag þar sem fiskurinn kemur líklega ekki fyrr en um kvöldmatarleytið og þá verðum við væntanlega að góna á þennan fjárans róbóta frameftir nóttu. Jájájá þetta er stuð.

Posted by kristingroa at 12.06.08 21:49
Comments
Post a comment









Remember personal info?