Veivei ég er komin aftur til Seattle. Ég fékk náðarsamlegast að fara með fyrsu vél frá Akutan í gær og ég get ekki sagt að mér hafi fundist það neitt svakalega leiðinlegt enda var ég satt að segja komin með hálfgerða innilokunarkennd þarna. Það var svo gott veður í gær að margumtalaða 60 ára gamla sjóflugvélin var í góðum gír svo það var ekkert annað að gera en að bíta á jaxlinn og vona að hún myndi ekki hrapa. Það var vægast sagt skrítin tilfinning að sitja um borð í flugvél sem keyrði út í sjó en flugferðin sjálf gekk mjög vel og þetta var satt að segja bara alls ekkert hræðilegt. Það þýðir ekki að mig langi til að gera þetta aftur en ég get þó allavega sagst hafa flogið í þessum safngrip!
Ég komst með næstu vél frá Dutch Harbor til Anchorage og svo var bara fjögurra klukkustunda bið þar eftir vélinni til Seattle. Ég get ekki lýst því hversu yndislegt það var að koma inn á risastóra hótelherbergið mitt (ég sver það eru álmur í því) og leggjast upp í dúnmjúka tveggja metra breiða rúmið. Ahhhh svo mikið betra heldur en heimavistarherbergið þarna norðurfrá. Ég verð reyndar að mestu leyti föst inni á hótelherbergi í dag að vinna en ég er að spá í að fara að skoða Experimental Music Project seinni partinn enda er það hérna rétt hjá hótelinu. Þetta er sem sagt einhverskonar rokktónlistarsafn í voðalega fríki húsi hönnuðu af Frank Gehry (sem hannaði Guggenheim safnið í Bilbao) og mér hefur verið ráðlagt að fara þangað af tvemiur heimamönnum svo ég þori ekki annað að hlýða. Það er svo aldrei að vita nema ég rölti niður í Belltown á eftir og fái mér mexíkóskan og margarítu(r). Mmmm ég elska siðmenninguna.
Posted by kristingroa at 14.06.08 21:29