júní 16, 2008

Seattle tekin í nefið

Vá hvað ég er gjörsamlega dauðuppgefin þó klukkan sé bara hálfsjö um kvöld. Eins og vanalega þegar ég er stödd í stórborg var ég komin út af hótelinu klukkan níu í morgun og gekk svo borgina þvera og endilanga. Mér finnst nokkuð gott að vera á labbi frá níu til hálfsjö með tveimur matarstoppum... úffpúff. Ég labbaði niður á Pioneer Square svæðið, tók annan skrens í Pike Place Market, verslaði þangað til kreditkorinu sveið og borðaði bæði krabba og sushi. Það var sólskin og 20+ hiti í allan dag svo þetta hefði eiginlega ekki getað verið betri dagur.. eini gallinn er að núna er ég með svo mikinn hausverk að mig langar til að öskra. Kannski fer tylenolið að virka ef ég stend upp frá tölvunni og leggst upp í sófa... það er þess virði að prófa það allavega.

Posted by kristingroa at 16.06.08 01:38
Comments
Post a comment









Remember personal info?