Ég sver að það eru fílar hérna á efri hæðinni. Ég hef bara aldrei vitað annan eins fjárans djöfulgang eins og er í gangi hérna fyrir ofan mig. Fólkið hlýtur bara að vera í glímu, það kemur fátt annað til greina. Hvað getur maður í alvöru verið að gera á hótelherbergi sem framleiðir svo mikinn hávaða að ég hrekk upp á nóttunni? Seriously.
Humm annars er bara enn blíða hérna í Seattle. Ég fór út að borða áðan með indælu fólki úr vinnunni sem var kærkomin tilbreyting frá því að sitja ein á veitingahúsi með bókina mína eins og algjör auli. Það er allavega orðið ansi þreytt, verð ég að segja. Ég meina mér finnst ég frábær en það eru takmörk fyrir því hvað ég nenni að eyða miklum tíma með sjálfri mér. Já en við sátum úti á verönd við smábátahöfnina, drukkum margarítur og borðuðum fiskitacos með ahi túnfiski... namm! Ekki hægt að kvarta mikið yfir því. Ég get aftur á móti kvartað yfir því að tölvan mín er búin að vera með stæla við mig í dag, vill ekki finna referenced dót og neitaði svo bara að kveikja á sér. Ég styð þetta ekki, sérstaklega þegar ég hef allt of lítinn tíma til að gera allt of mikið... er virkilega farin að sjá fram á að klára þetta ekki áður en ég fer heim sem er satt að segja algjör bömmer. Blehh.
Posted by kristingroa at 17.06.08 03:27