júní 18, 2008

Framlenging

Ég get ekki sagt að það hafi komið mér mikið á óvart en ég var beðin um að vera degi lengur hérna í Seattle. Þeir vildu reyndar jafnvel fá að hafa mig enn lengur en ég sagði að það væri ekki hægt, bæði hef ég svo mikið að gera heima áður en ég fer út til Danmerkur um þarnæstu helgi og svo vil ég satt að segja bara fá eina heila fríhelgi heima á Íslandi. Ég er búin að vera síðustu tvær helgar hérna úti og ég verð næstu tvær helgar í Danmörku svo ég vil helst ekki missa þessa helgi líka. Ástæðan fyrir að ég verð lengur er sú að mig vantar ákveðin gögn sem hefur gengið vægast sagt illa að fá og án þeirra er ég bara strand. Nú er búið að lofa mér því að ég fái þau í hendurnar á morgun og ef það stenst þá ætti ég að geta klárað þetta dót að mestu leyti sem er frekar mikill léttir.

Ég hætti að vinna um hálffimm í dag og rölti niður í bæ í góða veðrinu. Ég notaði Jón Óskar vin minn sem afsökun fyrir að fara inn í Urban Outfitters (hann bað mig að kaupa boli) og keypti í leiðinni geggjaða hettupeysu sem ég rak augun í um daginn eftir að ég var búin að borga. Hei ég verð degi lengur sem þýðir meiri dagpeningar svo ég mátti þetta alveg... þetta var bara bónus ;) Jón Óskar hváði reyndar þegar ég sagði að mig langaði í hettupeysu enda er það nú ekki beint klæðnaður sem ég geng vanalega í. Þessi er samt svo fancy að það er ekki að marka! Nú er bara spurning hvort ég næ að loka ferðatöskunni... hehe.

P.S. Ég setti inn örfáar myndir af Grumman Goose vélinni sem ég flaug með frá Akutan til Dutch Harbor. Sjá hér.

Posted by kristingroa at 18.06.08 03:02
Comments
Post a comment









Remember personal info?