júní 19, 2008

Á heimleið

Ég fékk gögnin sem ég þurfti um hádegisbilið í dag og viti menn... þegar ég var komin með þau í hendurnar gat ég klárað mitt á hálftíma. Mikið óskaplega létti mér. Ég var orðin frekar stressuð hafandi aðeins hálfan dag til að finna út úr þessu öllu en svo virkaði þetta bara í fyrstu tilraun! Ég er kannski ekki eins vitlaus og ég lít út fyrir að vera eftir allt saman.

Ég hlakka svo sem ekki til ferðalagsins á morgun en ég hlakka til að koma heim og njóta helgarinnar. Þó ég sé bara búin að vera í Seattle í fimm daga þá er ég komin með svo ótrúlega leið á því að þurfa að fara út að borða þrisvar á dag. Í hvert skipti þarf ég að láta vísa mér til borðs, skoða matseðilinn, panta, bíða eftir matnum, bíða eftir reikningnum, bíða eftir að fá að borga... þetta er bara svo mikið vesen. Meira að segja morgunmaturinn hérna á hótelinu virkar svona! Nú er alveg ótrúlega góður matur hérna (sérstaklega er allt sjávarfang gott) en ég bara nenni þessu ekki lengur svo ég endaði á að taka með mér Subway upp á hótel núna áðan og gomsa því í mig yfir Mythbusters. Æjj það verður gott að koma heim.

Posted by kristingroa at 19.06.08 02:17
Comments
Post a comment









Remember personal info?